Helga Kristjánsdóttir listmálari opnaði myndlistasýning í Saltfisksetrinu á Sjóaranum síkáta. Þar sýnir Helga 25 myndir sem hún hefur unnið að síðastaliðið ár en nokkurra áhrifa gætir af eldgosum í verkum hennar að þessu sinni. Aðeins nokkrir dagar eru eftir af sýningunni en síðasti sýningardagur er næsti sunnudagur.
Grindvíkingar eru hvattir til þess að bregða sér í Saltfisksetrið til þess að skoða málverkasýningu Helgu sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir verk sín undanfarin misseri. Þá er hún dugleg að bæta við sig þekkingu og standa fyrir námskeiðum þar sem hún hefur fengið útlenda listmálara til þess að koma hingað og miðla þekkingu sinni í listastofu Helgu.
Þess má geta að Helga verður einnig með verk á Ljósanótt í Reykjanesbæ í september.