Í ár er fimmta skiptið sem Sigrún Jónsdóttir Franklín semur söguratleik í Grindavík og enginn skortur er á söguefni. Ratleikurinn er auðveldur og fróðlegur útivistarleikur fyrir alla fjölskylduna. Ratleikurinn hefst við upphaf Sjóarans síkáta og stendur fram að Jónsmessu. Leitað er að spjöldum á stöðum sem merktir eru á ratleikskort ásamt fróðleik.
Árið 2006 var saminn landnámsratleikur um staði eða örnefni sem tengjast landnámsmönnum í Grindavík. Ári síðar voru það álaga- og huldufólksstaðir og árið 2008 voru valdir staðir þar sem merkir atburðir hafa átt sér stað. Í fyrra voru 70 ár frá því að Hópið var grafið út til hafnargerðar og af því tilefni voru valdir staðir sem minntu á lendingar, leiðarmerki og hafnargerð í Grindavík. Í ár eru 80 ár eru frá því að Slysavarnadeildin var stofnuð 2. nóvember 1930 og af því tilefni er vert að minnast á mikilvægi sjóslysavarna og björgunarsveita. Söguratleikur 2010 vísar á nokkra slíka áþreifanlega minnisvarða.
Höfundur ratleiks er Sigrún Jónsd. Franklín. Fróðleikurinn byggir á Sögu Grindavíkur frá árinu 1994 sem Jón Þ. Þór tók saman, örnefnalýsingum og munnmælum fólks í Grindavík.
Bókstafi og tölustafi á hverjum stað þarf að færa inn á lausnarblaðið og skila því í Saltfisksetrið eigi síðar en 25. júní. Dregið verður úr réttum lausnum og það tilkynnt í Jónsmessugöngunni á Þorbirni 26. júní.
Veglegir vinningar í boði.
1. Fjölskylduárskort í Bláa lónið og gjafabréf á veitingastaðnum LAVA á hádegisverðarhlaðborði fyrir fjóra.
2. Hellaskoðun fyrir tvo á vegum Eldfjallaferða.
3. Sigling og veiði fyrir tvo á vegum Bryggjunnar, Miðgarði 2.
Vinsamlegast látið vita ef spjöld finnast ekki eða hafa verið færð úr stað í Saltfisksetrið s. 4201190.
Ratleikskortið má finna í dagskrá Sjóarans síkáta, Járngerði á bls. 12 -13 sjá www.grindavik.is eða nálgast það í Saltfisksetrinu, Hafnargötu 12a Grindavík s. 420 1190.