Ökumaður torfæruhjóls slasaðist og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landsspítalans, þegar hann ók inn í hlið bíls, sem ekið var eftir Víkurbraut, á móts við Festi í Grindavík, um níuleitið í gærkvöldi.
Hann féll í götuna og hjólið rann undir bílinn. Engan sakaði í bílnum. Bifhjólamaðurinn mun ekki vera alvarlega slasaður, en hann dvaldi á sjúkrahúsinu í nótt til rannsókna, að sögn Vísis.