Hátíðarhöldin 17. júní í Grindavík fóru fram í blíðskaparveðri í gær við Grunnskóla Grindavíkur. Mikið var lagt upp úr dagskráratriðum fyrir börnin en þar komu við sögu Horn á höfði, Brúðubíllinn, söngvakeppni barna, Pálmar Guðmundsson, hestateyming, töframaður, söngvakeppni barna og þá voru leiktæki á svæðinu og ýmsar íþróttaþrautir.
Eftir karamelluregn og skrúðgöngu frá Landsbankatúninu var dagskráin við grunnskólann annað árið í röð sem er vel til fundið. Bæjarbúar fjölmenntu að þessu sinni á hátíðarhöldin sem er ánægjulegt. Allt fór vel fram þrátt fyrir nokkra rigningadropa þegar líða fór á daginn.
Fleiri myndir fá hátíðarhöldunum má sjá á myndasíðunni og með því að smella á efstu myndina má sjá smá myndbrot frá hátíðarhöldunum.