Uppskeruhátíð sviðlista, Gríman 2010, var haldin miðvikudaginn 16. júní í Þjóðleikhúsinu og í beinni útsendingu á Stöð 2. Grímuverðlaunin voru veitt í áttunda sinn í alls 17 flokkum sviðslista auk heiðursverðlauna Leiklistarsambands Íslands, sem einn dáðasti leikari þjóðarinnar, Árni Tryggvason hlaut. Grindvíska atvinnuleikhúsið og Bergur Ingólfsson fengu glæsilega viðurkenningar en segja má að Bergur hafi sópað til sín verðlaunum.
Leiksýningin Horn á höfði eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund S. Brynjólfsson í sviðssetningu GRALS - Grindvíska atvinnuleikhússins var valin BARNASÝNING ÁRSINS. Leikstjórn annaðist Bergur Þór Ingólfsson. Þetta er mikinn heiður fyrir lítið atvinnuleikhús í Grindavík og þá sem að GRAL standa.
Bergur vann til fleiri verðlauna. Sýning ársins var valin leiksýningin Jesús litli í leikstjórn Benedikts Erlingssonar og í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur. Sýningin var frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins þann 20. nóvember 2009. Höfundar verksins, þau Benedikt Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir og Snorri Freyr Hilmarsson hlutu einnig verðlaun sem leikskáld árins.