397. fundur Bæjarstjórnar Grindavíkur verður haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 16. júní 2010 og hefst kl. 17:00. Þetta er fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar á þessu kjörtímabili. Kosið verður í bæjarráð og nefndir bæjarins, lagður fram málefnasamningur meirihlutans, lögð fram tillaga að auglýsa eftir bæjarstjóra og fleira. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Almenn erindi
1. 1005027 - Sveitarstjórnarkosningar 29. maí, 2010
2. 1006017 - Kosning á forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta
3. 1006018 - Kosning í bæjarráð, sbr. a-liður 57. gr. Samþykkta um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
4. 1006026 - Kosning í kjörstjórn til fjögurra ára, sbr. 14. gr. laga nr. 24 frá 2000.
5. 1006019 - Kosning í nefndir til fjögurra ára samkvæmt b-lið 57. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
6. 1006021 - Málefnasamningur B- og D-lista
7. 1006028 - Laun til bæjarfulltrúa og nefndarlaun.
8. 1006010 - Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar
9. 1006015 - Sameining grunnskóla í Grindavík
10. 1005045 - Viljayfirlýsing milli HS ORKU hf, og TITAN GLOBAL ehf.
11. 1005021 - Samningur um framlag til byggingar reiðhúss.
12. 1006020 - Heimild til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi bæjarstjórnar.