Stelpurnar mćta Haukum á Ásvöllum

  • Fréttir
  • 15. júní 2010

Kvennalið Grindavíkur sækir Hauka heim á Ásvöllum í Pepsideild kvenna í knattspyrnu kl. 19:15. Þetta er ákaflega mikilvægur leikur því Grindavík er í 8. sæti með 8 stig og Haukar í 9. sæti með 3 stig og með sigri getur Grindavík sagt skilið við falldrauginn í bili og jafnvel stefnt ofar í deildinni.

Norður Írar hafa tilkynnt leikmannahóp sinn er mætir Íslendingum á Laugardalsvelli. Leikurinn er í undankeppni fyrir HM 2011 og fer fram laugardaginn 19. júní kl. 16:00. Í 18 manna hópi Norður Íra eru tveir leikmenn sem leika með Grindavík sem og tveir aðrir sem leikið hafa með íslenskum félagsliðum.
Framherjinn Rachel Furness og varnarjaxlinn Sarah McFadden leika með Grindavík í Pepsi-deildinni og miðjumaðurinn Kim Turner lék einnig með liðinu á síðasta ári sem þá var hið sameiginlega lið GRV.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir