Vorhátíð Foreldrafélagsins á Króki var haldin í síðustu viku á nýja tjaldsvæðinu. Að vanda var líf og fjör á vorhátíðinni. Pálmar Örn Guðmundsson kennari og fyrrverandi starfsmaður Króks mætti með gítarinn og sprellaði með krökkunum eins og honum einum er lagið. Þá voru grillaðar pylsur og krakkarnir fengu krít í fötu að gjöf frá foreldrafélaginu.
Myndirnar voru teknar á Vorhátíðinni og eins og sést á myndunum var það gleðin sem réði ríkjum.