Samkvæmt tölulegum upplýsingum úr hraðvaraskilti á Grindavíkurvegi við innkeyrsluna í bænum komu 7.585 bílar til Grindavíkur frá fimmtudagskvöldi til sunnudagskvölds meðan á Sjóaranum síkáta stóð. Sé notast við þumalputtareglu Vegagerðarinnar og skráðir 2,5 farþegar í hverjum bíl komu um 19 þúsund gestir á hátíðina. Þegar heimamönnum er svo bætt við er ljóst að nokkuð yfir 20 þúsund manns voru á Sjóaranum síkáta um síðustu helgi.
Þá á eftir að bæta við þeim sem keyrðu Suðurstrandarveginn en þar var þó nokkur trafík.
Hér má sjá fleiri myndir frá Sjóaranum síkáta. Fleiri myndir úr litahverfunum má sjá hér. Enn vantar myndir frá ljósmyndara Bláa hverfisins.