Mjög góð þátttaka var í reykköfun sem boðið var upp á hjá Slökkviliði Grindavíkur á laugardaginn á Sjóaranum síkáta. Búið var að koma fyrir litlu húsi á lóðinni hjá slökkvistöðinni og var notast við reykvél sem líkir eftir þeim aðstæðum sem reykkafarar þurfa að vinna við.
Var mjög fróðlegt fyrir þá, sem inn fóru, að gera sér grein fyrir vinnuaðstöðu reykkafara, en þeir þurfa að fara inn í lokuð rými sem eru full af reyk. Reykurinn sem notast er við er samskonar og er notaður við tónlistar og leiksýningar að því er segir á heimasíðu Slökkviliðsins.