Græna hverfið bar sigur úr bítum í fótboltamóti hverfanna sem haldið var á Grindavíkurvelli í tilefni Sjóarans síkáta. Í undanúrslitum bar Græna hverfið sigurorð af því Bláa en í hinni undanúrslitarimmunni lagði Rauða hverfið það Appelsínugula en báðir leikirnir fóru 1-0.
Úrslitaleikurinn var afar spennandi og skemmtilegur. Markmennirnir sem þurftu að spila í stígvélum misstu þau af sér hvað eftir annað í útspörkum og leikmenn áttu á köflum í erfiðleikum með að standa í lappirnar því þeir þurftu að spila á strigaskóm á grasinu. Rauðir höfðu titil að verja frá því í fyrra en það voru Grænir sem höfðu sigur með lúmsku en glæsilegu marki Helga Einarssonar. Grænir stigu villtan stríðsdans þegar sigurinn var í höfn enda unnu þeir líka róðrakeppnina og kraftakeppnina. Fjölmenni var á Grindavíkurvelli eða um 750 manns.