Á meðal nýjunga á Sjóaranum síkáta að þessu sinni var dorgveiðikeppni sem haldin var á sunnudagsmorgninum. Alls skráðu 50 börn sig til leiks sem verður að teljast frábært og þá voru foreldrar duglegir að fylgja krökkunum og voru yfir 100 manns á bryggjunni sem röðuðu sér á bryggjukantinn fyrir framan ísstöðina.
Allir þátttakendur fengu verðlaunapeninga og jafnframt voru veitt verðlaun fyrir nokkra flokka eins og flesta fiskana og ljótasta fiskinn. Dorgveiðikeppnin tókst ljómandi vel og er komin til þess að vera á Sjóaranum síkáta en litahverfin fjögur sá um framkvæmd hennar.