Að vanda bauð Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur upp á skemmtisiglingu, að þessu sinni var farið á tveimur skipum, Sturlu GK 12 og Tómasi Þorvaldssyni GK 10 en það hefur ekki veirð gert áður. Fjölmenni varð um borð í báðum bátunum en farið var í klukkutíma siglingu út á sjó. Löng hefð er fyrir þessari siglingu.
Björgunarsveitin Þorbjörn fylgi skipunum eftir með sínum björgunarskipum. Þessar skemmtilegu myndir úr ferðinni tók Eyjólfur Vilbergsson.