Grindvíkingar hafa farið á kostum í að skreyta bæinn í aðdraganda Sjóarans síkáta. Bænum hefur verið skipt upp í fjögur litahverfi sem hafa lagt mikinn metnað í að skreyta í sínum litum. Eiga bæjarbúa hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu þar sem frumleikinn og metnaðurinn var gríðarlegur. Að þessu sinni voru veitt verðlaun fyrir bestu skreytingarnar á bryggjuballinu í gærkvöldi.
Í dómnefndinni átti hvert hverfi sinn fulltrúa auk þess sem fenginn var Sandgerðingur til þess að vera formaður dómnefndar.
Dómnefndin var þannig skipuð:.
Formaður dómnefndar: Marta Eiríksdóttir Púlsinum Sandgerðisbæ.
Rauða hverfið: Sæborg Reynisdóttir.
Bláa hverfið: Rakel Lind Hrafnsdóttir.
Græna hverfið: Sólveig Ólafsdóttir.
Appelsínugula hverfið: Þórunn Róbertsdóttir.
Nefndin fór um bæinn eftir hádegi í gær, föstudag, og var einhuga í sínum störfum. Niðurstaðan varð eftirfarandi:
Best skreytta húsið er í rauða hverfinu og er: Árnastígur 2.
Best skreytta gatan er í græna hverfinu og er: Leynisbrún.
Frumlegasta skreytingin er í appelsínugula hverfinu og er: Vesturhóp 30.
Best skreytta fyrirtæki/stofnun er í bláa hverfinu og er: Leikskólinn Laut.
Best skreytta hverfið árið 2010 er: Bláa hverfið.
Það var Sólveig sem kynnti úrslitin með trukki og dýfu á hátíðarsviðinu við Saltfisksetrið í gærkvöldi.
Leynisbrún: Best skreytta gatan.
Leikskólinn Laut: Best skreytta fyrirtækið/stofnun.
Árnastígur 2: Best skreytta húsið.
Bláa hverfið er best skreytta hverfið.
Vesturhóp 30: Frumlegasta skreytingin.