Um 100 eldri borgarar frá menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Reykjavík heimsóttu Grindavík í gær og fóru víða. Meðal annars tók Gerðubergskórinn lagið og þá var slegið upp dansleik í Saltfisksetrinu auk þess sem farið var í skoðunarferð og gert ýmisleg fleira. Eldri borgararnir hafa verið duglegir að prjóna og leggja sitt af mörkum í Grindavíkurtrefilinn, eða alls 125 metra!
Benný Ósk Jökulsdóttir í Aðal-braut sem átti hugmyndina að Grindavíkurtreflinum þakkaði kærlega fyrir þetta frábæra framlag í Grindavíkurtrefilinn.
Þá mættu þó nokkrir eldri borgarar úr Grindavík í Saltfisksetrið og var því líf og fjör í húsinu allan daginn.
Með því að smella á efstu myndina má sjá myndband frá dansleiknum.