Á Sjóaranum síkáta verður í fyrsta skipti á Íslandi boðið upp á svokölluð Segway hjól til útleigu, sérstaklega fyrir gesti á Sjóaranum síkáta, af Segwey hjólaleigunni. Umboðsmaður hjólanna er Bjarni Ólafur Guðmundsson. Hjólunum er stjórnað með jafnvægishreyfingum og vekja hvarvetna mikla athygli en þau eru umhverfisvæn og hagkvæm.
Á myndinni er Bjarni Ólafur á einu hjólanna við Saltfisksetrið. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 um farartækið.