Undirbúningur fyrir Sjóarann síkáta er í fullum gangi hjá Slökkviliði Grindavíkur og björgunarsveitinni Þorbirni sem bjóða upp á reykköfun, björgunarstól og fleiri björgunartæki á svæðinu fyrir ofan slökkvistöðina næsta laugardag.
Slökkvilið Grindavíkur býður gestum að prófa reykköfun. Nú er búið að koma fyrir húsi á lóð slökkvistöðvarinnar þar sem reykköfunin fer fram. Slökkviliðið hvetur gesti Sjóarans síkáta til þess að prófa reykköfunina, allir eru velkomnir.
Myndirnar voru teknar þegar húsið sem notað verður undir reykköfunina var sett fyrir ofan slökkvistöðina í gær.