Bæjarstjórnarkosningar í Grindavík hófust kl. 9 í morgun í Grunnskóla Grindavíkur. Alls kusu 140 utankjörfundar að þessu sinni sem er nokkru færra en fyrir fjórum árum, þá bárust 172 atkvæði utankjörfundar. Á kjörskrá í Grindavíkurbæ eru 1.867. Konur eru 920 en karlar 947. Til samanburðar voru 1.543 á kjörskrá fyrir fjórum árum og er því umtalsverð fjölgun á kjörskrá eða 324.
Þess má geta að á hér á heimasíðunni verða birtar fyrstu tölur í kvöld, líklega upp úr 23 eða fyrr, og svo verða birtar niðurstöðutölur um leið og úrslitin liggja fyrir, líklega upp úr miðnætti ef talning gengur vel.
Myndin var tekin á kjörstað í grunnskólanum í morgun.