Veðurblíðan hefur leikið við Grindvíkinga að undanförnu. Flokksstjórar unglingavinnunnar teknir til starfa og farnir að fegra bæinn og styttist í að unglingavinnan hefjist. Gróðurinn hefur tekið við sér og búið að setja blómaker um allan bæ sem boða sumarkomuna. Myndin var tekin af nokkrum nemendum í 6. R við eitt blómakerið en krakkarnir voru í gönguferð um bæinn í gær í góða veðrinu.