Fjölmenni var á sameiginlegum framboðsfundi í Grunnskóla Grindavíkur í gærkvöldi, salurinn þétt setinn og jafnframt góður fjöldi uppi á palli. Fundurinn var málefnalegur og tókst vel. Framboðin fimm byrjuðu á því að vera með framsögur og síðan bárust fjölmargar áhugaverðar fyrirspurnir úr sal sem frambjóðendur svöruðu skýrt og skilmerkilega.
Fyrir hönd Framsóknar töluðu þau Bryndís Gunnlaugsdóttir og Páll Jóhann Pálsson, fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins þeir Guðmundur Pálsson og Vilhjálmur Árnason, fyrir hönd Lista Grindvíkinga þau Kristín María Birgisdóttir og Dagbjartur Willardsson, fyrir hönd Samfylkingar þau Páll Valur Björnsson og Marta Sigurðardóttir og fyrir hönd Vinstri grænna og óháðra þau Garðar Páll Vignisson og Guðný Sigfúsdóttir. Fundarstjóri var Þorsteinn Gunnarsson.