Ársreikningur bæjarsjóðs fyrir síðasta ár var lagður fram á síðasta bæjarstjórnarfundi. Rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs, þ.e. A-hluta var 74,5 milljónir kr. í tap. Áætlun gerði ráð fyrir 52,4 milljónum kr. í tap. Rekstrarniðurstaða A og B hluta er tap að fjárhæð 114,7 milljónir kr. en áætlun gerði ráð fyrir 117,1 milljón í tap.
Helstu frávik í rekstri A-hluta eru:
- Skatttekjur voru 27 milljónum hærri en áætlun gerði ráð fyrir.
- Framlög Jöfnunarsjóðs voru 14,1 milljón kr. hærri en áætlun.
- Laun og launatengd gjöld voru 39,5 milljónum kr.hærri en áætlun.
- Aðrar tekjur og annar rekstrarkostnaður var 19,3 milljónum kr. óhagstæðari en áætlun gerði ráð fyrir.
- Fjármagnsliðir voru 20,6 milljónum kr. hagstæðari en áætlun.
Heildareignir í samanteknum reikningsskilum eru 8.241,2 milljónir kr. Heildarskuldir og skuldbindingar eru 3.141,5 milljónir kr. Þar af er lífeyrisskuldbinding um 391,5 milljónir kr. og reiknuð skuld að fjárhæð 290,4 millj. kr. sem er vegna leigusamnings við Nýsi ehf vegna leikskólans við Stamphólsveg. Langtímaskuldir, að meðtalinni skuld vegna leikskólans við Stamphólsveg, eru 2.256,8 milljónir kr. Næsta árs afborganir langtímalána eru 227,8 milljónir kr. Eigið fé í samanteknum reikningsskilum er 5.099,7 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall 61,9%.
Rekstur A og B hluta skilaði 287,9 millj. kr. í veltufé frá rekstri en áætlun gerði ráð fyrir veltufé að fjárhæð 335,2 milljónir kr.
Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum í samanteknum reikningsskilum námu á árinu 2009 1.044,3 milljónir kr. en áætlun gerði ráð fyrir 819,2 milljónum króna. Á árinu voru tekin ný lán að fjárhæð 117,9 milljónir kr. og afborganir lána og leiguskuldbindingar voru 221,5 milljónir kr. Handbært fé lækkaði um 833,9 milljónir kr. í samanburði við áætlun 595,5 milljónir kr. Handbært fé í árslok var 3.402,9 milljónir kr.
Ársreikningurinn er samþykktur samhljóða