Morgunútvarp Rásar 2 sendi beint út frá kaffihúsinu Bryggjunni í morgun. Margrét Marteinsdóttir og Guðmundur Gunnarsson umsjónarmenn morgunútvarpsins tók púlsinn á pólitíkinni, Sjóaranum síkáta og ýmsu fleira og ræddu við Kristinn Jóhannsson, annars eiganda Bryggjunnar.
Á meðal annarra viðmælenda voru Jóhannes Haraldsson sem lenti í lífsháska í gær þegar trilla hans sökk. Guðrún Jóna Magnúsdóttir ræddi um pólitíkina auk þess sem tekinn var púlsinn á bæjarbúum. Hafdís Sigríður Jónsdóttir og Jón Gauti Dagbjartsson voru fulltrúar starfsstéttanna í spurningakeppni morgunútvarpsins og Þorsteinn Gunnarsson upplýsinga- og þróunarfulltrúi fór m.a. yfir Sjóarann síkáta í ár.
Hægt er að nálgast upptöku á þættinu á heimasíðu RÚV: http://dagskra.ruv.is/ras2/4520872/2010/05/20/