Í dag miðvikudaginn 19. maí kl. 17:00 verður síðasti bæjarstjórnarfundurinn á þessu kjörtímabili en sveitastjórnarkosningar fara fram þann 29. maí. Miklar breytingar verða á bæjarstjórninni á næsta kjörtímabili en af þeim bæjarfulltrúum sem nú sitja verða Guðmundur Pálsson (D), Garðar Páll Vignisson (V) og Björn Haraldsson (V) áfram á framboði.
Fimm framboð verða að þessu sinni í Grindavík fyrir bæjarstjórnarkosningarnar.