Fundur verður haldinn þriðjudaginn 18. maí kl. 17:00-19:00 í Saltfisksetrinu, Hafnargötu 12a fyrir alla þá aðila sem starfa eða hafa áhuga á ferðaþjónustu og/eða menningarmálum í Grindavík. Fundurinn hefst á stuttum kynningum á starfsemi Saltfisksetursins, Náttúruviku 25. júlí - 2. ágúst og Leiðsögumönnum Reykjaness.
Leiðsögumenn Reykjaness munu stýra svót vinnu meðal fundargesta þar sem farið verður yfir og teknir saman styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri í ferðaþjónustu og/eða menningarmálum á svæðinu. Markmiðið er fá betri yfirsýn yfir heildarskipulag í ferðaþjónustu og menningarmálum.
f.h. Saltfisksetursins og Leiðsögumanna Reykjaness
Sigrún Jónsd. Franklín, menningarmiðlari