Heimasíðunni hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning: ,,Framsóknarfélag Grindavíkur opnaði nýja heimasíðu á sama tíma og kosningaskrifstofa flokksins opnaði á uppstigningadag. Heimasíðan er á slóðinni www.xbgrindavik.is og þar er að finna upplýsingar um frambjóðendur, stefnu flokksins og dagskrána framundan.
Einnig viljum við þakka þeim fjölmörgu bæjarbúum sem komu við þegar skrifstofan var opnuð en yfir 200 manns mætti á opnunina.
Við viljum benda fólki á að kosningaskrifstofan er opin frá 14:00 til 17:00 alla helgina.
Heitt á könnunni og meðlæti.
Framsóknarfélag Grindavíkur"