Vilhelm Arason hefur verið útnefndur liðsstjóri bláa hverfisins fyrir Sjóarann síkáta. Vilhelm hefur strax boðað til fundar í bláa hverfinu, fimmtudaginn 6. maí kl. 21 á Lukku láka. Jafnframt hefur Bláa hverfið tekið Fésbókarsíðu í gagnið.
Þá er eftirfarandi bréf væntanlegt í bláa hverfið:
,,Kæri íbúi í Bláa hverfinu, nú styttist í Sjóarann síkáta og um að gera að fara að leggja höfuðið í bleyti og ákveða hvað gera skal. Komdu á fund með okkur og komdu þínum hugmyndum og skoðunum á framfæri! Villi Ara hefur verið útnefndur liðsstjóri. Þeir sem vilja bjóða sig fram í undirbúningsnefnd honum til aðstoðar eru hvattir til þess að mæta.
Svo erum við líka með hóp á Facebook: Ég er í Bláa hverfinu! Hópurinn er lokaður og sækja þarf um inngöngu í hann.
Munið: Fimmtudaginn 6. maí kl. 21.00 á Lukku láka."