Helgina 1.-2. maí nk. verður ferðasýningin Íslandsperlur í Perlunni. Að sýningunni standa markaðstofur landshlutanna í ferðaþjónustu, Ferðaþjónusta bænda, Opinn landbúnaður og Beint frá býli. Mikið verður lagt í kynningu á þessarri sýningu og er gert ráð fyrir fjölda gesta og er óhætt að segja að Grindavík verði þarna áberandi.
Sveitarfélögin á Suðurnesjum í gegnum Markaðsstofu Suðunesja verða með sameiginlegan bás. Ferðaþjónustuaðilar í Grindavík-Experience taka virkan þátt í sýningunni og hafa lagt mikinn metnað í sinn hluta. Þar verða allir helstu ferðaþjónustuaðilar í Grindavík þar sem kynnt verður það helsta sem þeir hafa upp á að bjóða. Meðal annars kemur heimsmetstrefillinn við sögu en þess má geta að trefillinn er kominn á Facebook!
Grindvíkingum er bent á að skella sér í Perluna og skoða hvað verður í boði í ferðaþjónustunni innanlands í sumar ásamt því að kíkja á Grindavíkurbásana.
Dagskrá sýningarinnar er sem hér segir:
Föstudagur 30. apríl
16:00 Opnunarhóf sýningarinnar
Laugardagur 1. maí
10:00 til 17:00 Opnunartími sýningar
Sunnudagur 2. maí
10:00 til 17:00 Opnunartími sýningar