Félagar í Verkalýðsfélagi Grindavíkur eru hvattir til að mæta í 1. maí kaffið í húsnæði verkalýðsfélagsins að Víkurbraut 46 frá kl. 14:30 - 17:00 á laugardaginn. Þetta hefur verið fastur liður á 1. maí undanfarna áratugi. Myndina tók Jóhanna Daðadóttir í Hraðfrystihúsi Grindavíkur 1973 og er úr ljósmyndasafni bókasafnsins.