Sjóarinn síkáti: Skilafrestur 10. maí - Óskađ eftir liđsstjórum

  • Fréttir
  • 26. apríl 2010

Undirbúningur fyrir Sjóarann síkáta er í fullum gangi og góð mynd að komast á dagskrána. Athygli er vakin á því að þeir sem vilja koma einhverju á framfæri í dagskrána á Sjóaranum síkáta eru beðnir að senda tölvupóst á sjorainnsikati@grindavik.is, í allra síðasta lagi 10. maí nk. en þá er stefnt að því að hafa dagskrána tilbúna. Þá hafa verið ákveðnir eftirfarandi undirbúningsfundir:

Lögreglan: Þriðjudaginn 27. apríl kl. 11:00.



Skólastjórar Hópsskóla, grunnskóla, Lautar og Króks:
Miðvikudaginn 28. apríl kl. 13:00.


Björgunarsveit, slökkvilið, forstöðumenn ýmissa stofnana, formaður bæjarráðs og ýmsir fleiri:
Miðvikudaginn 5. maí kl. 14:00.


Þjónustuaðilar (verslun, þjónusta, ferðaþjónusta):
Fimmtudaginn 6. maí kl. 20:00.


Liðsstjórar litahverfanna (appelsínugula, bláa, græna og rauða):
Föstudaginn 7. maí kl. 13.

Jafnframt verður fundur á morgun með formanni Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur sem stendur fyrir glæsilegri dagskrá á Sjómannadeginum.


Fundirnir fara fram á bæjarskrifstofunum.

Hverfin fjögur eru beðin um að tilnefna hvert sinn liðsstjóra sem mun hafa yfirumsjón með ýmsum þáttum eins og skipulagningu á göngunni á föstudagskvöldið, liðsskipan í fótboltamótið og ýmislegt fleira. Vinsamlegast látið vita í síðasta lagi 4. maí nk. um hver liðsstjórinn er.

Þess má geta að á meðal skemmtikrafta sem hafa bæst á prógrammið eru Hera Eurovisonsöngvari, Jógvan og Friðrik Ómar, Skoppa og skrítla, hljómsveitin Dúkkulísurnar o.fl.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!