Íbúafundur verður um umferðaröryggismál í Grindavíkurbæ í Saltfisksetri Íslands fimmtudaginn 29. apríl kl. 17:00. Í nóvember í fyrra gerði Grindavík samning við Umferðarstofu um gerð umferðaröryggisáætlunar og er íbúafundurinn liður í þeirri vinnu þar sem óskað er eftir þátttöku bæjarbúa við gerð hennar.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Dagskrá: | Umræðuefni: |
1. Guðmundur Pálsson, formaður bæjaráðs | Opnun |
2. Þorsteinn Gunnarsson, upplýsinga- og þróunarfulltrúi | Umferðaröryggisáætlun |
3. Baldur Grétarsson, verkfræðingur hjá Vegagerðinni | Grindavíkurvegur |
4. Björk Guðmundsdóttir, landslagsarkitekt hjá Forma | Endurbætur í Grindavík |
5. Sigurður Ágústsson, yfirlögregluþjónn | Umferðaröryggi |
6. Hópavinna | |
- Umferð og hættur við skóla/leikskóla/íþróttamannvirki | Hópstjóri: Þorsteinn |
- Grindavíkurvegur | Hópstjóri: Baldur |
- Hættuleg gatnamót | Hópstjóri: Sigurður |
- Gönguleiðir / reiðleiðir / útivistarsvæði | Hópstjóri: Ingvar |
8. Niðurstöður hópanna | Hópstjórar |
9. Fundarslit |
Hópavinnan gengur þannig fyrir sig að fundargestum er skipt í fjóra hópa og fara hópstjórarnir á milli borða.
Grindvíkingar eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í vinnunni. Bent er á að hægt að nálgast slysakort fyrir Grindavík á vef Umferðarstofu.