Grindavík er úr leik í deildarbikar karla eftir að hafa fallið úr leik í 8 liða úrslitum annað árið í röð. Grindavík tapaði fyrir bikarmeisturum Breiðabliks 1-0 í Reykjaneshöll en sigurmarkið kom úr umdeildri vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks.
Blikar voru betri aðilinn í fyrri hálfleik en meira jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik. Grindavík sótti stíft undir lokin en þá opnaðist vörnin og Blikar áttu m.a. tvö stangarskot.
Í deildarbikarkeppni kvenna stendur riðlakeppnin enn yfir. Grindavíkurstúlkur skelltu nágrönnum sínum í Keflavík 3-0 í Reykjaneshöllinni. Grindavík hafði mikla yfirburði í leiknum. Elínborg Ingvarsdóttir, Margrét Kristín Pétursdóttir og Alexandra Sveinsdóttir skoruðu mörk Grindavíkur sem hefur sex stig eftir fjóra leiki og er í 4. sæti riðilsins.