Fisktækniskóli Suðurnesja í Grindavík var formlega opnaður í vikunni við hátíðlega athöfn í Saltfisksetrinu eins og greint var frá í annarri frétt á heimasíðunni. Á meðal þeirra sem tóku til máls voru Ólafur Jón Arnbjörnsson skólastjóri, Björn Valur Gíslason alþingismaður, Ólafur Jóhannsson formaður undirbúningsnefndar, Gunnar Tómasson frá Þorbirni og Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri. Með því að smella á stóru myndina má sjá myndband frá þessari sögulegu stund þegar skólinn var opnaður formlega.
Eftir athöfnina í Saltfisksetrinu var haldið að Ægisgötu 3 þar sem verknámsaðstaðan og má einnig sjá svipmyndir þaðan.