Upp úr kreppunni međ menningartengdri ferđaţjónustu

  • Fréttir
  • 20. apríl 2010

Leiðsögumenn Reykjaness boða til fundar þá aðila sem starfa í ferðaþjónustu og/eða menningarmálum á Suðurnesjum. Hvernig getum við stuðlað að því að vöxtur í ferðaþjónustunni skili sér til samfélags okkar Suðurnesjamanna? Hverjir eru styrkleikar svæðisins? Veikleikar, ógnanir og tækifæri? Svörum því saman.

Dagskrá: 13:00-13:30: Mæting og skráning.

Katrín Jakobsdóttir, menningar- og menntamálaráðherra Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðum. Byggðasafns Reykjanesbæjar Sigrún Jónsdóttir Franklín, SJF menningarmiðlun Kaffispjall SVÓT-vinna

16:20-17:00: Samantekt hópa.
Allt bendir til þess að ferðaþjónustan verði mikilvæg í leiðangri samfélagsins upp úr efnahagserfiðleikunum sem fylgt hafa í kjölfar bankahrunsins. Það sýndi sig í Finnlandi að ferðaþjónustan var fljót að bregðast við breyttum aðstæðum og er það mat margra að ef betur hefði verið að henni hlúð hefðu sóknarfærin nýst betur og greinin náð að leggja enn meira af mörkum til endurreisnarinnar. Ýmislegt bendir til þess að hið sama sé uppi á teningnum hér á landi og aðstæður um margt hagstæðar ferðaþjónustunni.
Finnum sóknarfærin og vinnum saman.

Í SVÓT vinnunni munum við vinna í hópum að því að greina styrkleika og veikleika svæðisins til sóknar í menningartengdri ferðaþjónustu. Finnum ógnanir og tækifærin sem ástandið og komandi misseri fela í sér fyrir ferðaþjónustuna almennt og fyrir menningartengda ferðaþjónustu sérstaklega.
Leiðsögumenn Reykjaness, sjálfseignarstofnun

LEIÐUM SAMAN HESTANA FIMMTUDAGINN 29. APRÍL 13:30 - 17:00
FLUG HÓTEL Í REYKJANESBÆ
SKRÁNING: INFO@REYKJANESGUIDE.IS
Tilgreinið: nafn, fyrirtæki/félag og símanúmer SEM FYRST


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir