Kristín Guðmundsdóttir Hammer kennari á Króki, sem mun útskrifast í vor sem leikskólakennari, gaf leikskólanum bókina Afi Öddi og sögugersemarnar, sem hún skrifaði um fimm þjóðsögur úr Grindavík. Bókin er hluti af lokaverkefni Kristínar til B.Ed. gráðu og fjallar um þjóðsögur og grenndarkennslu og er hún kærkomið námsefni fyrir skólana okkar hér í Grindavík.
Að heimasíðu Króks segir að í bókinni segir frá Báru sem fer í pössun hjá Ödda afa og Brjáni hundinum hans í fimm daga. Afi segir henni þjóðsögur á hverju kvöldi og fer síðan með hana á söguslóðir og tengir um leið sögurnar og staðina sem þær gerast á. Þjóðsögurnar eru um þjófana í Þjófagjá, tröllkonuna í Festarfjalli, Drykkjarstein, Silfurgjá og hafmeyjuna í sjónum við Þórkötlustaðarmið. Auk þess að skrifa bókin myndskreytti hún hana sjálf og er bókin fjársjóður fyrir okkur Grindvíkinga eins og réttilega kemur fram á heimasíðu Króks.
Þess má geta að Kristín er systir þeirra Siggu og Bjargar Hammer en þegar Kristín útskrifast í vor eru þær systurnar allar menntaðar leikskólakennarar.