Grindvíkingurinn Erna Rún Magnúsdóttir var valinn besti leikmaður meistaraflokks kvenna hjá körfuknattleiksdeild Þórs á Akureyri í vetur en lokahóf deildarinnar fór fram um helgina. Erna Rún var jafnframt valin besti varnarmaðurinn en hún stóð sig feikilega vel með norðanstúlkum í vetur.