Menntamálaráđherra opnar formlega Fisktćkniskóli Suđurnesja í Grindavík

  • Fréttir
  • 18. apríl 2010

Þriðjudaginn 20. april mun menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir opna formlega aðstöðu Fisktækniskóla Suðurnesja í Grindavík.  Fisktækniskólinn er samstarfsverkefni Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum, Sambands Sveitarfélaga á Suðurnejsum, Grindavíkurbæjar, einstaklinga auk fyrirtækja og stéttarfélaga á sviði veiða og vinnslu á Suðurnejsum.

 

Undir merki Fisktækniskólans hafa samstarfsaðilarnir sett sér að markmiði að vinna að eflingu náms og kennslu á sviði veiða, vinnslu og fiskeldi á Suðurnesjum og vilja jafnframt vinna að og hvetja til samstarfs á landsvísu um samræmt grunnnám á framhaldsskólastigi í samstarfi fræðslu- og hagsmunaaðila sem víðast á landinu. Þá vill félagið vinna að almennri kynningu á námi á sviði sjávarútvegs og fiskeldi og efla námsefnisgerð.

Fisktækniskóli Suðurnejsa í Grindavík sér nú um kennslu á sviði veiðitækni (netagerðar) á grundvelli samstarfssamnings við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og áformar að hefja kennslu á sviði veiða (hásetanám), vinnslu og fiskeldi á framhaldsskólastigi á næsta ári - á grundvelli nýrrar námskrá sem verið er að vinna að og að fengnu samþykki menntamálayfirvalda.

Fisktækniskólinn hefur ráðið starfsmann á sviði endur- og símenntunar í samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og mun starfsmaðurinn - auk áherlsu á almenna fullorðinsfræðslu í Grindavík - sinna sérstaklega verkenfum á sviði endurmenntunar og raunfærni á svið veiða og vinnslu. Með því viljum við tengja sem best grunnmenntunar og endurmenntunar í viðkomandi greinum og auðvelda raunfærnimat.

30 nemendur (átján hásetar, tveir í netagerð og tíu í fiskvinnslu) hófu nám hjá Fisktækniskólanum í marsmánuði á grundvelli sérstaks átaks vinnumálstonfunar á Suðurnesjum og verður námið metið til eininga á framhaldsskólastigi. Nemendur Fisktæniskólans verða til staðar og kynna vinnu sína í verknámi í tilefni opnunarinnar á þriðjudaginn.

Athöfnin hefst í Saltfisksetrinu í Grindavík kl. 16.00 og í framhaldi verður til sýnis verknámsaðstaðan að Ægisgötu 3 og bóknámsaðstaðan að Víkurbraut 56, en þar verða jafnframt aðstaða Miðstöðvar Símenntunar á Suðurnesjum í Grindavík.

Allir hjartanlega velkomnir.

Fh. Fisktækniskóla Suðurnesja,
Ólafur Jón Arnbjörnsson

Á neðstu myndinni má sjá nemendur Fisktækniskólans í heimsókn í fiskeldisstöðinni á Stað í Grindavík.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!