Í dag, fimmtudaginn 15. apríl, verður hægt að skila bútum í trefilinn góða í Aðalbraut á milli kl. 16 og 19. Þegar þetta var gert í fyrsta skipti mældist trefillinn rétt tæpir 50 metrar. Hins vegar eru margir búnir að skila núna og má því búast við að trefillinn verði enn lengri í þetta sinn.
,,Við höldum ótrauð áfram að prjóna lengsta trefil í heimi. Það þýðir ekkert að gefast upp, það eru margir rosalega duglegir að prjóna út um allan bæ sem hafa ekki í hyggju að skila inn alveg strax," segir Benný Ósk Jökulsdóttir prjónakona.