Guðmundur Bragason, fyrrum leikmaður Grindavíkur, var efstur á óskalista körfuknattleiksdeildar félagsins sem næsti þjálfari karlaliðsins. Guðmundi var boðið starfið en hann hafnaði því vegna anna í vinnu.
Grindvíkingar eru því aftur komnir á byrjunarreit. „Við erum að kasta nöfnum á milli okkar þessa dagana og erum opnir fyrir öllu. Útlendingur gæti jafnvel komið til greina," segir Magnús Andri Hjaltason, formaður deildarinnar við Fréttablaðið í morgun.
„Við viljum fá hæfan þjálfara. Höfum verið með góða þjálfara hérna hjá okkur síðustu ár og viljum ekki fara að breyta því núna."