Fiskverkun, verkstæði, geymsla og nýtt vigtarhús eru í byggingu í Grindavík þessar vikurnar og ganga framvæmdir vel. Nýja vigtarhúsið við höfnina verður tilbúið í sumar en búið er að loka því og verið að ganga frá því að innan og frá framkvæmdum á lóð. Verktaki er Grindin efh.
Í iðnaðarhverfinu hefur mikið verið um að vera síðustu vikur. Annars vegar er verið að byggja nýja fiskverkun austan við Stakkavík en húsnæðið er um 930 fermetrar. Verktaki er HH smíði.
Hins vegar er verið að byggja verkstæði og geymsluhúsnæði sem er um 490 fermetrar við Staðarsund og er stálgrindarhús. Verktaki er Grandsmíði í Grindavík.
Nýja vigtarhúsið við höfnina.
Verkstæði og geymsluhúsnæði við Staðarsund.
Nýtt fiskverkunarhús í byggingu.