Í tilefni af Sumardeginum fyrsta og Barnahátíð á Suðurnesjum mun Menningar og bókasafnsnefnd bjóða upp á barnaleiksýningu Leikfélags Keflavíkur, sem kemur með sýningu sína“Mér er alveg sama þó einhver sé að hlæja að mér“ eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur. Verkið er að hluta endurskrifað og staðfært og léttum lögum bætt við.
Lóma tröllastelpa er að byrja í skóla, en hún er svolítið öðru vísi en hinir krakkarnir í bekknum. Ýmsar skemmtilegar persónur og furðuverur eru þarna á ferð, sem ná vel til áhorfenda á öllum aldri.
Sýningin verður fimmtudaginn 22.apríl, Sumardaginn fyrsta, um miðjan dag.
Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir!
Nánar auglýst um hvar og hvenær er nær dregur!