Hún Margrét Fríða Hjálmarsóttir (sem er í 4. bekk) var ein af mörgum stúlkum sem spreytti sig í prufum fyrir hlutverk Sollu stirðu i Latabæ. Hún hreppti ekki hlutverkið en var boðið að taka þátt í Latabæjarsýningunni sem var í Laugardalshöllinni nú um helgina. Margrét tók þátt í hópatriði á sýningunni, var með í tveimur atriðum þar sem hún ásamt 90 öðrum stelpum léku vinkonur Sollu stirðu og dönsuðu þær með Sollu. Hún var eina stúlkan úr Grindavík sem var með í þessari sýningu. Þetta var mikil upplifun fyrir hana og gaman að fá að vera þátttakandi í svona stórri sýningu.
Margrét með "nýjustu" Sollu stirðu.
Margrét ásamt systkinum sínum, Viktori Erni og Rebekku Rut, og íþróttaaálfinum Magnúsi Scheving.