Nú um helgina fer fram í íþróttahúsi Grindavíkur úrslitakeppni 7. flokks drengja í körfuknattleik. Eftirtalin lið taka þátt og berjast um íslandsmeistaratitilinn í þessum aldursflokki: Fjölnir, Grindavík, Haukar, KR og Þór. Keppni hófst í dag og voru úrslit sem hér segir:
KR - Þór: 43 - 37
Grindavík - Fjölnir: 46 - 36
Haukar - Þór: 40 - 45
KR - Fjölnir: 48 - 42
Grindavík - Haukar: 46 - 32.
Grindavík vann sem sagt sína báða leiki í dag.
Keppni hefst aftur á morgun kl. 10:00 og eiga Grindavíkurstrákar leiki kl. 12:00 og 14:00.
Eru allir áhugamenn um körfuknattleik hvattir til að fjölmenna í Röstina og styðja ungu strákana til sigurs. Hér eru framtíðarleikmenn Grindavíkur á ferðinni.
Einn af ungu körfuknattleiksmönnum Grindavíkur sem eru að keppa um helgina
spreytir sig á vítaskoti.