Myndlistarkonan Fríða Rögnvaldsdóttir opnaði í dag sýningu í Listsýningarsal Saltfiskseturs Íslands. Á sýningunni sem ber yfirskriftina, SMÁSÖGUR, er fjöldi glæsilegra verka eftir listakonuna. Fríða hefur undanfarin ár unnið myndir í steypu og mun á sýningunni sýna sínar nýjustu myndir
Fríða hefur verið með Baðstofunni í Keflavík, sem er áhugamannahópur um myndlist, frá árinu 1986-1999.
Árið 1999 fékk Fríða inngöngu í Academie of Fine Kust í Tongeren í Belgíu og var það í málunardeild til haustsins 2001.
Fríða hefur sótt námskeið í Myndlistarskóla Kópavogs í vatnslitamálun og hjá Myndlistar- og handíðaskóla Íslands í módel- og fjarvíddarteikningu. Hún hefur tekið þátt í mörgum samsýningum hér heima og einnig haldið fjölmargar einkasýningar.
Þessi sýning er hennar fjórða einkasýning í Saltfisksetrinu frá árinu 2006 og að auki hefur hún tekið þátt í einni samsýningu í Saltfisksetrinu.
Fjöldi fólks var samankomið við opnun sýningarinnar í dag og ljóst að Fríða nýtur mikillar hylli Suðurnesjamanna.
Sýningin mun standa til 19. apríl n.k. og er opin alla daga frá kl. 11:00 - 18:00
Fríða Rögnvaldsdóttir (lengst til hægri) ásamt nokkrum gestum við opnun sýningarinnar.
Fjöldi gesta var við opnun sýningarinnar.
Listaverk eftir Fríðu Rögnvaldsdóttur