Árshátíð miðstigsins í grunnskólanum sem er 5., 6. og 7. bekkur, fór fram á dögunum. Þar var boðið upp á mörg frábær atriði þar sem m.a. voru flutt leikrit eftir Berg Ingólfsson leikara og jafnframt leikrit eftir kennarana sjálfa á miðstiginu. Fjölbreytnin var í fyrirrúmi, Íslendingarsögurnar fengu sitt pláss, síldarárin, útihátíðir og ýmislegt fleira.
Árshátíð miðstigsins var virkilega skemmtileg og sýndu krakkarnir flottan leik. Þá var dansað og sungið á sviðinu.
Með því að smella á myndina að ofan er hægt að sjá myndbrot úr tveimur leikritum frá 7. S og 6. R. Þá eru ljósmyndir hér að neðan frá árshátíðinni.