Nýtt og sjálfstćtt hestmannafélag í Grindavík stofnađ

  • Fréttir
  • 22. mars 2010

Í undirbúningi er að stofna öflugt og sjálfstætt hestamannafélag í Grindavík að því er segir á glænýrri heimasíðu hestmanna í Grindavík. Búið er m.a. að skrifa drög að samþykktum fyrir félagið, kynna sér málið hjá nýlegum hestamannafélögum ásamt því að ræða við hestamannafélagið Mána um þetta tilvonandi félag sem tæki þá við af Grindavíkurdeild Mána í framtíðinni.

Þetta félag mun efla verulega hestamennskuna innan lögsögu Grindavíkur og eitt fyrsta verk þess verður að eiga og byggja reiðhöll.

Fyrirhugaður stofnfundur verður þann 25. mars n.k. og verður það nánar auglýst síðar.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir