Tímamót hjá fimleikadeildinni

  • Fréttir
  • 22. mars 2010

Fyrsta innanfélagsmót fimleikadeildar UMFG var haldið í gær. Grunnskólabörn kepptu á nokkrum áhöldum og í níu hópum. Mikil stemmning var í íþróttahúsinu og gekk mótið í alla staði mjög vel. Veitt voru verðlaun fyrir 1.-3. sæti á hverju áhaldi og þá voru krýndir innanfélagsmeistarar hjá stúlkum og drengjum.

Óhætt er að segja að það sé stórt skref hjá fimleikadeild UMFG að standa fyrir sínu fyrsta móti. En með góðu skipulagi gekk allt vel fyrir sig og keppendurnir stóðu sig með miklum sóma.

Sagt verður frá verðlaunahöfum á morgun en með þessari frétt má sjá myndbrot og ljósmyndasyrpu frá innanfélagsmótinu.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir