Á fimmtudaginn var komið að langþráðri stund hjá grunnskólanum þegar keppnislið skólans tók þátt í riðlakeppni Skólahreystis í Smáranum, Kópavogi. Grindvíkingar voru í erfiðum riðli og stóðu sig með ágætum en urðu í 12. sæti af 15 liðum. Allir keppendur liðsins eru í 9. bekk og geta því mætt aftur að ári og gert enn betur. Þeir nemendur sem kepptu fyrir grunnskólans voru: Jóhanna Marín, Hákon, Björn Lúkas og Signý.
Í riðlinum voru eftirtaldir skólar: Akurskóli, Áslandsskóli, Gerðaskóli, Heiðarskóli, Holtaskóli, Hraunvallarskóli, Hvaleyrarskóli, Lækjarskóli, Myllubakkaskóli, Njarðvíkurskóli, Setbergsskóli, Stóru-Vogaskóli, Víðistaðaskóli og Öldutúnsskóli.