,,Bæjarsýningu grunnskólans, Dúkkulísa, sem fyrirhuguð var á sunnudag kl. 17.00, hefur af óviðráðanlegum orsökum verið frestað til mánudagsins 22.mars kl. 20:00. Biðjumst við velvirðingar á þeim hringlandahætti sem orðið hefur og óþægindum sem einhverjir verða fyrir. Vonumst við jafnframt til þess að sjá sem flesta á mánudagskvöldið," segir í tilkynningu frá skólastjórnendum grunnskólans.