Íþrótta- og æskulýðsnefnd Grindavíkurbæjar afhenti verðlaun til þeirra fyrirtækja og stofnana í Grindavík sem tóku þátt í Lífshlaupinu á dögunum. Alls tóku 14 fyrirtæki þátt með 29 lið og 347 einstaklinga, sem þýðir að 12,21% bæjarbúa tóku þátt í þessu skemmtilega verkefni. Grindavík varð í 3. sæti á landsvísu en í fyrstu þremur sætunum voru frekar fámennir hreppar.
Sigurður Enoksson, formaður íþrótta- og æskulýðsnefndar, afhenti viðurkenningarnar en þau fyrirtæki og stofnanir sem tóku þátt voru: Bæjarskrifstofurnar, Bókasafnið, Englaberg, Grunnskóli Grindavíkur, heilsuleikskólinn Krókur, Hópsskóli, HSS-Víðihlíð, leikskólinn Laut, Optimal, Orkubúð-Heilsurækt, Vísir hf, Íþróttamiðstöð Grindavíkur og Þorbjörn.
Á efri myndinni eru fulltrúar Optimal og íþróttamiðstöðvarinnar sem einnig unnu til verðlauna á landsvísu.