Grindavík mætir Snæfelli í 8 liða úrslitum Íslandsmótsins í körfuboltakarla eftir naumt tap gegn ÍR. Ljóst er að þetta verður afar erfið rimma en flestum er í fersku minni að Snæfell sigraði Grindavík í bikarúrslitaleik liðanna fyrir skömmu. Friðrik Ragnarsson þjálfari Grindavíkur sagði eftir leikinn í kvöld að stærsta vandamál liðsins væri að þegar það væri undir pressu brotnaði það saman og næði sér ekki á strik.
Grindavík hafði forystu lengst af. Staðan í hálfleik var 69-62, Grindavík í vil. Grindavík náði mest 12 stiga forskoti en skelfilegur lokakafli varð liðinu að falli. Ljóst er að liðið þarf að gera mun betur gegn Snæfelli ef það ætlar sér að komast áfram. Darrel Flake skoraði 22 stig fyrir Grindavík, flest í fyrri hálfleik, og Guðlaugur Eyjólfsson 19 en hann kom sterkur inn af bekknum.
„Snæfell er hrikalegt sterkt lið. Það er alveg ljóst að það verður sterkt lið sem dettur út í átta liða úrslitum, hvort sem það verða við eða þeir. Við erum með markmið í gangi og það er að verða Íslandsmeistarar. Það er ekkert launungamál. Til þess þurfum við að fara í gegnum Snæfell. Það verður erfitt enda svakalega gott lið," sagði Friðrik í samtali við mbl.is.
Liðin hafa tvívegis mæst á skömmum tíma. Snæfell hafði betur í bikarúrslitaleiknum og um daginn sigraði Grindavík í deildarleiknum í Hólminum. „Já við getum alveg unnið þá. Við verðum bara að hefna fyrir bikarúrslitaleikinn. Eina leiðin til þess að láta þau sár gróa er að vinna þá og slá þá út úr úrslitakeppninni," sagði Friðrik.